Á. Guðmundsson ehf. var stofnað í janúar 1956 af Ásgeiri J. Guðmundssyni húsgagnasmíðameistara að Eiríksgötu 9 Reykjavík í 40 fermetra húsnæði. Árið 1962 flutti það í 220 fermetra eigið húsnæði að Auðbrekku 10 í Kópavogi sem stækkaði í 1100 fermetra á þrem hæðum, en 1977 var flutt að Skemmuveg 4 í 1450 fermetra húsnæði á einni hæð sem síðan var byggt við 330 fermetra árið 1993. Á vormánuðum 1999 flytur Á.Guðmundsson að Bæjarlind 8-10 Kópavogi í glæsilegt verslunar- og iðnaðarhúsnæði sem er 3200 fermetrar.
Í fyrstu voru framleidd ýmsar gerðir húsgagna hjá Á.Guðmundsyni en árið 1973 hófst framleiðsla skrifstofuhúsgagna og í dag framleiðir fyrirtækið hin geysivinsælu SERÍA skrifstofu- og skólahúsgögn sem hönnuð eru af Sturlu Má Jónssyni innanhúsarkitekt. Nú síðustu ár hefur fyrirtækið aukið vöruval sitt t.d. í skrifborðsstólum og viðarstólum ásamt sérsmíði og getur nú boðið heildarlausnir fyrir skrifstofur, funda- og ráðstefnusali, skóla, bókasöfn, öldrunarheimili og fl.
Á.Guðmundsson hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á kröfu markaðarins um góð og vönduð húsgögn og hefur því ávallt haft arkitekt á sínum vegum sem sinnir vöruþróun fyrirtækisins.
Hjá fyrirtækinu starfa nú um 25 manns. |